Fréttir
VínTríó kominn með hið frábæra gæða vínhús frá Rioja, Marqués De Cáceres
VínTríó komið með hið frábæra gæða vínhús frá Rioja, Marqués De Cáceres.
http://www.marquesdecaceres.com/
Yamada 3 1/2 stjarna frá Vinotek
Yamada Pecorino 2009
Þetta vín frá Zaccagnini í Abruzzo á Mið-Ítalíu er sprækt og heillandi en þrúgan er hin ítalska Pecorino.
Grösugt með ferskum sítrus, ekki síst greip og steinefnum. Þétt, svolítið feitt. Flott vín sem hentar jafnt sem fordrykkur eða með góðum pastaréttum með sjávarfangi. Reynið t.d. með humar-linguini.
2.088 krónur.
09. mars 2011 - Yamada 3 1/2 stjarna frá Vinotek.is
Kasaura Montepulciano
4 stjörnur frá Vinotek.is
Það er hins vegar ekkert ódýrt við vínið þegar í glasið er komið. Þetta er hörkuvín, dökkt með þéttum og þroskuðum, dökkum berja- og plómuávexti, kryddað, með vott af reyk og brenndum kaffibaunum. Langt og endingargott.
Montepulciano-vínin frá Abruzzo eru oft með betri kaupum sem hægt er að gera í ítölskum vínum og þetta vín er svo sannarlega til marks um það.
1.699 krónur. Mjög góð kaup.
22. mars 2011 - Kasaura Montepulciano, 4 stjörnur frá Vinotek.is
Ardales Tempranillo 2006
Vínin af þessu eru oft sviplítil og hlutlaus. Það á þó ekki við um þetta vín sem er í senn aðlaðandi og kröftugt. Tær, kryddaður kirsuberja-ávöxtur, sólríkur en ekki ofþroskaður. Eik sem spilar vel með ávextinum og gerir vínið dýpra og meira um sig. Mjúkt og þægilegt.
1.989 krónur. Mjög góð kaup.
Ardales Tempranillo frá Spáni, 4 stjörnur frá vinotek.is.
Af Smakkarinn.is, Kasaura vín ársins
Þá er komið að víni ársins 2010!!
Vín ársins 2010 að mati vínsmakkarans er.....
Vín sem mér finnst án efa bestu kaupin í ríkinu í dag. Þetta vín er svo gott að það tók miklu dýrari vín í nefið í ítölsku vínsmakki hjá vínklúbbnum í vor. Gæðin eru gríðarleg og verðið á þessum erfiða tíma er vægt til orða tekið hlægilegt.
Ég vil óska umboðsaðilanum Vín Trío til hamingju með vín ársins 2010.....
Kasaura!!!!
Kasaura Montepulciano d´Abruzzo, Ítalía 2008.
Þó ég hafi smakkað mörg góð vín í mars var ég var farin að efast um að ég myndi finna eitt nógu gott til að vera vín mánaðarins. Það er að segja þangað til það var haldinn vínklúbbsfundur með ítölsku þema, og ég fékk að smakka Kasaura. Það verður að segjast að það voru nokkur mjög góð vín smökkuð og nokkur hefðu auðveldlega getað verið vín mánaðarins. En bara eitt vín var frábært í bragði og frábært í verði og kosið af lang flestum vínklúbbsmeðlimum sem besta vínið, Kasaura! Þess má geta að klúbbmeðlimir fá ekki að vita hvaða vín er í hvaða glasi fyrr en eftir smakkið. Vínið er með mjúkri svartri kirsuberja-, karamellu- og kaffi lykt. Bragðið er silki mjúkt með banana, kaffi og svörtum kirsuberjum. Eftirbragðið er meðallangt og ávaxtaríkt.
Njótið þess! Þess má geta að verðið er aðeins 1.590 kr.. umboðsaðili er Vín Trio.
Jam Jar Sweet Shiraz
Jam Jar Sweet Shiraz
Jam Jar Sweet Shiras vinsælasta Suður Afríska vínið í USA er loksins komið í sölu í reynnslubúðum ÁTVR. Vinsældir Jam Jar hafa vaxið hratt frá því að það kom fyrst á markað 2008 og er virkilega gaman að fá þetta skemmtilega vín hingað til okkar. Stíllinn er sætari en við eigum að venjast en alls ekki um of og vínið ferskt með helling af bláberjum, sólberjum og rifsberjum með dökku súkkaði undirtónum. Frábært jafnvægi á sætu og sýru og vínið er gott með flestu kjötdiskum, reyktukjöti, ostum og eftirréttum.










